25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar
What the source reports
Í dag eru 25 ár frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum, 11. september 2001. Árásirnar og eftirmálar þeirra mörkuðu djúp sár í þjóðarsál Bandaríkjamanna og mun víðar enda var enginn ósnortinn af þeim mikla harmleik sem átti sér stað þennan dag. Heimsmyndin breyttist og tilveru fólks var snúið á hvolf. Alls létust 2. 977 af 90 þjóðernum þegar fjórum flugvélum var rænt á innan við klukkustund og þeim flogið á Tvíburaturnana í New York og bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon. Fjórða flugvélin brotlenti á berangri í Pennsylvaníu. Árásirnar eru mannskæðustu hryðjuverkaárásir í sögunni. Atburðarrásin þennan dag hefur verið kortlögð þaula en fyrst um sinn var talið að um slys væri að ræða þegar fyrri vélin flaug á norðurturn Tvíburaturnanna kl. 8:46. Lögregla, sjúkraflutningafólk og slökkviliðsfólk fór samstundis á vettvang. Skömmu síðar var þáverandi Bandaríkjaforseti George W.
Bush látinn vita en hann var staddur í grunnskóla í Sarasota á Flórída þegar árásirnar voru gerðar. Þegar seinni flugvélin flaug á suðurturninn sautján mínútum síðar var ljóst að þetta væri ekki slys. Þriðja vélin lenti á Pentagon klukkan 9:37. Talið er að fjórða flugvélin hafi átt að steypast á þinghúsið í Washington. Líklegt er talið að flugfarþegar vélarinnar hafi náð að yfirbuga flugræningjana eða trufla áætlanir þeirra með þeim afleiðingum að vélin hrapaði klukkan tíu í Pennsylvaníu. Flóttaleiðir lokaðar Fjöldi fólks var mættur til vinnu í Tvíburaturnunum þennan dag enda þriðjudagur og vinnuvikan nýhafin svo að segja. Ekki er þó vitað með vissu hversu margir voru staddir í Tvíburaturnunum þegar árásirnar voru gerðar. Mikil skelfing braust út meðal þeirra sem urðu vitni að árásunum eða voru staddir í turnunum, í nærliggjandi byggingum og á jörðu niðri. Flugvélin sem flaug á norðurturninn sat…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗