Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur
What the source reports
Á annað hundrað var sagt upp hjá ríkisstofnunum í hópuppsögnum í október, meirihlutinn verður endurráðinn. Atvinnuleysi eykst á næstu mánuðum. Vinnumálastofnun fékk fimm tilkynningar um hópuppsagnir í október, alls náðu þær til 281 starfsmanns. Meirihlutinn er opinberir starfsmenn, en hluti þeirra fær störf sín aftur. Hátt í þrjú hundruð misstu störf sín í hópuppsögnum í síðasta mánuði. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að skýra megi fjöldann að hluta með sameiningu stofnana, og margir fái störf sín aftur. „Þetta eru tvær stórar opinberar stofnanir sem verið er að leggja niður og renna inn í Stofnun atvinnuveganna um áramótin. Og það er langstærsti hlutinn af þessu,“ útskýrir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar.
Í þeim hópi er 171 sem hefur starfað hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, en þær verða að Stofnun atvinnuveganna, en alls var 177 sagt upp hjá ríkisstofnunum. Félagsþjónusta, matvælaframleiðsla og sveitarfélögin 41 missti starf sitt við félagsþjónustu og 13 í matvælaframleiðslu. Þá er inni í þessum tölum Vinnumálastofnunar hluti þeirra starfsmanna sveitarfélaga sem hefur verið sagt upp að undanförnu. „Það eru 50 manns þarna inni frá Reykjavíkurborg,“ segir Unnur. En er þetta óvenju há tala í októbermánuði? „Já, þetta er óvenjuhá tala af því að þessar stofnanir eru með svo marga. Það er fyrst og fremst það. En ef við tökum þá frá þá eru þetta um 100 manns og það er ekki meira en á þessum árstíma. “ Hvað er hópuppsögn? Hópuppsagnir eru þannig skilgreindar að ýmist ná þær til 30 starfsmanna eða fleiri eða eru tiltekið hlutfall af starfsmannafjölda. Til dæmis telst það hópuppsögn ef tíu starfsmönnum er sagt upp á vinnustað þar sem þeir eru færri en hundrað. Ef starfsmenn eru fleiri þarf hún að ná til að minnsta kosti…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗