One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Af hverju sleit KA sambandinu við Þór?

Af hverju sleit KA sambandinu við Þór?

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 8:55 AM
Af hverju sleit KA sambandinu við Þór?
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 8:55 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

KA hefur slitið samstarfi sínu við Þór en liðin stilltu upp sameiginlegu liði í meistaraflokki kvenna í áraraðir. Lið Þór/KA hefur átt fast sæti í efstu deild kvenna frá 2006 en á sér lengri sögu. Eftir að samstarfinu var slitið heldur Þór liði sínu í efstu deild en KA byrjar í neðstu deild, þeirri þriðju efstu. Þórsarar eru því með bæði karla- og kvennalið sitt í efstu deild en KA í neðri deildum, eftir fall KA-manna úr Bestu deild karla. Á næsta sumri verður það í fyrsta sinn frá 1992 sem Akureyrarliðin stilla upp sitt hvoru liðinu á Íslandsmótinu. Liðið bjargaði sér frá falli í ár en hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari. Af hverju kemur þetta til núna? Forráðamenn KA og Þórs útskýra málið. Sævar Helgason framkvæmdastjóri KA og Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs ræddu málið. Hér má sjá viðtöl við þá.

KA sleit áralöngu samstarfi sínu við Þór þar sem Akureyrarfélögin tefldu fram sameiginlegu liði í Bestu deild kvenna í fótbolta. Liðin hafa stillt upp sameiginlegu liði síðustu 34 ár. Af hverju kemur þetta til núna? Hvernig er saga liðsins? Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000. Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2001-2005. Frá 2006 hefur svo Þór/KA átt sæti á Íslandsmótinu og varð Íslandsmeistari tvisvar undir merkjum Þór/KA. Það var árin 2012 og 2017. Íslandsmótið á næsta ári verður því það fyrsta síðan árið 1992 sem Þór og KA tefla fram sitt hvoru kvennaliðinu. Þór verður í Bestu deildinni á næstu leiktíð en KA verður með lið í 2. deild kvenna. Félögin voru með sameiginlegt lið á Íslandsmóti karla í handbolta undir nafninu Akureyri handboltafélag á árunum 2006-2017 en luku því…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS