Annað hvort þarf að forgangsraða eða taka velferðina að láni
What the source reports
Samband íslenskra sveitarfélaga tók saman uppgjör fimm stórra sveitarfélaga, Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Akureyrar. Við ræddum við Sögu Guðmundsdóttur, aðalhagfræðing samtakanna, um niðurstöðuna og um fjárhagsstöðu sveitarfélaga almennt. „Það sem við sjáum miðað við árshlutauppgjör 2026 er að heildarafkoma sveitarfélaga er lakari en á sama tíma og á fyrra ári. Við sjáum að rekstrarniðurstaðan er neikvæðari heldur en hún var á fyrra ári. Og jafnvel þó við leiðréttum fyrir allskonar liðum sem hafa í raun ekki áhrif á sjóðstreymi, reiknaðar stærðir eins og verðbætur eða breytingar lífeyrisskuldbindinga eða slíkt, þá sjáum við að veltufé er að dragast saman.
Mér reiknast til að ef við horfum á svona ein fimm stærstu sveitarfélögin sem hafa birt ársreikningana sína eða árshlutareikningana sína fyrir þau er veltu því að dragast saman og það er einhvers staðar í kringum 6% sem er óviðunandi,“ segir hún. Ekki sé nægilega mikið veltufé frá rekstri til að sveitarfélögin geti með góðum hætti fjárfest eða greitt af lánum sínum. Að draga úr fjárfestingu og viðhaldi eins og að pissa í skóinn Fjárfestingar eru ekki bara nýfjárfestingar heldur líka viðhald, svo sem á skólum, leikskólum, götum og þess háttar. Saga bendir á að götur og holræsakerfi sveitarfélaga eru jafn verðmæt og þjóðvegirnir. Þá séu um 65% opinberra bygginga í eigu sveitarfélaga. Það skipti þess vegna miklu máli að nægilegur afgangur sé af hefðbundnum rekstri sveitarfélaga til þess að þau geti fjárfest og sinnt viðhaldi. Að draga úr nauðsynlegri fjárfestingu og viðhaldi sé eins og að pissa í skóinn sinn. Þegar þrengi að, eigi sveitarfélög til að skera niður fjárfestingar, þar með talið viðhald. „Eftir fjármálahrunið var fjárfestingarstig lágt í alveg tæpan áratug og við heyrum það bara enn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗