Blaðamenn tékkneska ríkisútvarpsins í verkfalli
What the source reports
Starfsmenn tékkneska ríkisútvarpsins Česká televize fóru í verkfall í dag til að mótmæla áformum ríkisstjórnar landsins um að gjörbreyta því hvernig fjölmiðillinn er fjármagnaður. Margir telja að breytingin muni ógna sjálfstæði hans. Abc news greinir frá þessu. Ef áformin verða samþykkt verður ríkisútvarp landsins fjármagnað af fjárlögum ríkisins í stað gjalda frá einstaklingum, heimilum og fyrirtækjum eins og fyrirkomulagið er í dag.
Fjölmiðillinn fengi um 15% minna fé með nýja fyrirkomulaginu en hann fær nú, sem gæti leitt til uppsagna starfsfólks, takmarkaðrar framleiðslu og niðurfellingar dagskrárliða. Gagnrýnendur segja að breytingarnar myndu greiða leið ríkisstjórnarinnar til að ná stjórn á fjölmiðlunum. Andrej Babiš forsætisráðherra Tékklands er forsprakki áformanna. Fordæmalaust verkfall Verkfallið er fordæmalaust í sögu tékkneskra almannaþjónustumiðla, segir Michal Kubal, fréttastjóri tékkneska ríkisútvarpsins. Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í miðborg Prag í dag til að krefjast þess að…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗