One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Brúin leggur af stað yfir ána

Brúin leggur af stað yfir ána

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 27, 2026, 10:10 PM
Brúin leggur af stað yfir ána
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 27, 2026, 10:10 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund. Brúin var smíðuð í einingum í Póllandi og síðustu mánuði hefur hún verið sett saman á bökkum Ölfusár. Nú er því lokið og snemma í morgun hófust starfsmenn ÞG verktaka handa við að draga hana frá eystri bakka árinnar yfir á þann vestari. Tekur 8-10 daga „Við áætlum að þetta taki 8-10 daga að draga yfir alla lengdina,“ segir Þorvaldur Hrafn Gissurarson forstjóri ÞG verktaka. „Hún er um 330 metrar að lengd, heildarþyngdin er rétt um 2. 000 tonn,“ segir hann um stærð brúarinnar.

50 sentímetrar í einu Að flytja langa og þunga brú krefst mikils mannafla. Að verkinu koma um 70 manns sem vinna með öflugan tækjabúnað. „Það er búið að hengja í brúna gríðarlega öfluga tjakka og búnað sem draga hana um það bil 50 sentímetra í einu. Þannig er þetta gert skref fyrir skref. “ Spurður hversu langt brúin fari á degi hverjum svarar Þorvaldur: „Við erum að flytja hana um það bil 5 metra á klukkustund, eins og það er núna. “ 65 metra turn er næsta verkefni Þegar brúin er komin á sinn stað tekur næsti áfangi verksins við. „Að reisa 65 metra háan turn hér í Laugdælaeyju sem er hið eiginlega burðarvirki brúarinnar. Sem stögin sem halda uppi brúnni festast síðan við,“ segir…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS