„Ég mun gera allt til að þér verði stútað“
What the source reports
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað á mánudag upp dóm yfir manni sem var ákærður fyrir brot í nánu sambandi fyrir að hafa í rúma tvo mánuði fyrr á þessu ári ofsótt fyrrverandi sambýliskonu sína og ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar og barna hennar. Maðurinn játaði sök og var því sakfelldur. Hann hlaut níu mánaða dóm, þar af sex skilorðsbundna. Maðurinn ofsótti konuna frá seinni hluta mars fram í júní.
Hann var settur í nálgunarbann um miðjan júní en hélt áfram að setja sig í samband við konuna og ógna henni. Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að taka konuna kverkataki og hrinda henni í jörðina þar sem hann herti að hálsi hennar svo hún átti erfitt með andardrátt. Hann sendi henni 90 tölvupósta með hótunum. Meðal annars sagði hann: „Ég mun gera allt til að þér verði stútað núna veit ég að fyrir þér…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗