One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Ekki útilokað að Netanjahú verði áfram við völd

Ekki útilokað að Netanjahú verði áfram við völd

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 12:25 PM
Ekki útilokað að Netanjahú verði áfram við völd
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 12:25 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Hvorug blokkin nær meirihluta á ísraelska þinginu eftir kosningarnar í gær þegar búið er að telja nærri áttatíu og fimm prósent atkvæða. Kjörsókn meðal araba sem búa í Ísrael jókst um 50% frá í síðustu kosningum. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, er stærstur og ekki útséð með að hann verði áfram við völd. En það er margt sem gæti gerst. Likud er með 27 þingsæti eins og staðan er núna en það eru 120 sæti á ísraelska þinginu. Næststærstur er flokkur Gadi Eisenkot, sá sem þykir líklegastur að skáka Netanjahú, Yashar-flokkur hans er með 22 sæti. Netanjahú og Eisenkot leiða blokkirnar tvær sem flokkar í framboði mynduðu fyrir þessar kosningar en hvorug þeirra nær hreinum meirihluta. Það þarf 61 þingmann og Netanjahú-blokkin er með 54 og Eisenkot-blokkin 49.

Gæti viljað neyðarstjórn Eitt af því sem gæti gerst er að Netanjahú fari fram á að mynduð verði svokölluð neyðarstjórn, sem er þekkt stærð í Ísrael, og hún yrði þá mynduð með flokkum úr Eisenkot-blokkinni. En það eru tveir flokkar sem mælast inni á þingi og eru utan blokka. Þessir tveir flokkar eru með 17 þingmenn samtals og eru báðir leiddir af mönnum sem tilheyra samfélagi araba í Ísrael. Það eru Sameiginlegi listinn sem fær 11 þingmenn eins og staðan er núna og Ra´am sem fær sex. Kjörsókn araba sem búa í Ísrael jókst um 50% frá því í síðustu kosningum. Það er eitur í beinum Netanjahú og það er eiginlega alveg útilokað að hann vinni með þessum flokkum og öfugt. Sama má segja um Eisenkot, hann sagði fyrir kosningar að það kæmi ekki til greina að vinna með flokkum sem eru ekki tilbúnir að skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. Verður boðað til nýrra kosninga? Svo gæti reynst ómögulegt að…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS