One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Erfitt fyrir Demókrata að ná málum í gegn þótt þeir vinni kosningar

Erfitt fyrir Demókrata að ná málum í gegn þótt þeir vinni kosningar

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 10:31 PM
Erfitt fyrir Demókrata að ná málum í gegn þótt þeir vinni kosningar
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 10:31 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Þó að Demókratar vinni þingkosningarnar í Bandaríkjunum verður ekki auðvelt fyrir þá að ná málum í gegn í þinginu án málamiðlana, segir Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun og niðurstöðurnar gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Kosningar í Bandaríkjunum geta reynst afdrifaríkar fyrir allan heiminn. Kosið verður um öll 435 sætin í fulltrúadeildinni, sem er neðri deild þingsins, og 35 af 100 sætum í öldungadeildinni. Einnig verður kosið um ríkisstjóra á 39 stöðum og á ríkisþing og í sveitastjórnir. Gætu komið í veg fyrir að Trump komi sínu fólki að Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild þingsins.

Nái Demókratar báðum þingdeildum fer í gang ýmis konar rannsóknarvinna og skoðanir á aðgerðum forsetans að sögn Svanhildar. Þá gætu demókratar komið í veg fyrir tilnefningar forseta fyrir dómstóla og æðstu yfirmenn í embættismannakerfinu vegna þess að öldungadeildin þarf að samþykkja þær. „Ef þar er ekki meirihluti Repúblikana þá flækist það töluvert fyrir Trump að koma sínu fólki að,“ segir Svanhildur. Grunar að fylgi Repúblikana sé ofmetið Kolbeinn Stefánsson, dósent í félagsfræði við HÍ, segir skoðanakannanir fyrir kosningar síðustu ár hafa vanmetið fylgi Repúblikana. „En mig grunar að í þetta sinn gæti það farið á hinn veginn, að það sé verið að ofmeta fylgi Repúblikana á þessum tímapunkti. En það náttúrulega ræðst allt á kjörsókninni,“ segir Kolbeinn. Það er ekki nóg að vera með bandarískan ríkisborgarrétt og mæta á kjörstað til þess að kjósa heldur…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS