Þetta eru atriðin sem tónlistarsérfræðingar Rásar 2 ætla ekki að missa af á Airwaves
What the source reports
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst formlega á morgun með opnunarviðburði á hjúkrunarheimilinu Grund. Halla Tómasdóttir forseti Íslands setur hátíðina og á eftir henni stíga Rakel og Lón á stokk og flytja ljúfa tóna. Líkt og áður geta hátíðargestir valið úr fjölmörgum viðburðum svo Menningarvefurinn leitaði á náðir nokkurra tónlistarsérfræðinga á Rás 2 til að kanna hvað væri efst á baugi hjá þeim í ár. Spenntust fyrir Liim Lovísa Rut Kristjánsdóttir í Popplandi er búin að kortleggja tónleikaplanið. Hún ætlar um víðan völl og er spenntust fyrir bandaríska rapparanum Liim. „Af íslenskum flytjendum er ég spennt fyrir mörgum. Ég hugsa að ég hefji leika á tvíeykinu Marsibil á Rosenberg á fimmtudeginum kl. 19:00. Algjör stemning að kíkja á nýja Rósenberg, vonandi verður einhver að laumast til að reykja inni. Fer svo beint að sjá RAKEL í Iðnó kl. 21:10, gítar og góður söngur, til í tuskið.
Þaðan mun ég brokka í Kolaportið til að sjá Adult DVD klukkan 22:30. Breskt dans-pönk lóðbeint frá Leeds, takk,“ segir Lovísa og hugsar að kvöldið endi þar, ekki nema andinn komi yfir hana og hún kíki á Digital Ísland í Ráðhúsinu. „Á föstudeginum ætla ég að sýna mér mildi og mæta aðeins seinna,“ segir hún, fyrsta mál á dagskrá eru tónleikar ungsveitarinnar Einakróna sem leikur fyrir dansi á Nasa 20:30. Breska sveitin Pollyfromthedirt treður svo upp á sama stað 22:30. „Þjóðlagatónlist og lo-fi-pönk, eflaust eitruð blanda, það verður að koma í ljós. Ef ég verð ekki orðin syfjuð þá ætla ég að ná strákunum í Spacestation upp úr miðnætti á föstudagskvöldinu en þeir spila í Ráðhúsinu. “ Lovísa Rut gerir ráð fyrir miklu flakki á fjölbreyttum laugardegi sem hefst með tónleikum KOIKOI á Lemmy 19:40. „Nýjasta platan On Happiness in Dreams er að trylla indírokkarana í Evrópu. Þaðan ætla ég að…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗