One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› „Þetta var bara djók til að byrja með“

„Þetta var bara djók til að byrja með“

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 9:39 AM
„Þetta var bara djók til að byrja með“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 9:39 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Maður sem er meðákærður í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur játar að hafa farið tvisvar að heimilum brotaþola málsins. Þetta kom fram við aðalmeðferð í máli Írisar Helgu sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldum. Hann hafnar þó að hafa tekið að öðru leyti þátt í umsáturseinelti Írisar Helgu eða að hafa hvatt hana til verka. „Þetta var bara djók til að byrja með,“ sagði maðurinn framhald aðalmeðferðarinnar í dag. Maðurinn er meðákærður ásamt Írisi Helgu fyrir að aðstoða Írisi í umsáturseinelti sínu. Helst er honum gefið að sök, eins og áður var nefnt, að hafa farið að heimili eins mannanna og sambýliskonu hans og atað þar hurðarhún hússins með saur. Maðurinn staðfesti að það hefði átt sér stað. Fyrsta degi aðalmeðferðar í málinu lauk í gær og var þá tekin skýrsla af Írisi Helgu.

Hún neitaði þar að hafa stundað umsáturseinelti gegn brotaþolum. Íris Helga kvaðst ekki hafa hvatt manninn til verknaðarins með berum orðum en lesin voru upp samskipti þeirra á milli þar sem maðurinn sendi meðal annars: „Skítaverkefni lokið. “ Íris lýsti því yfir að maðurinn væri eini vinur hennar sem ekki hefði snúið við henni baki í gegnum málaferli síðustu ára. Þau hefðu kynnst í gegnum vinnu en hefðu einnig þekkst sem börn. Trúði því sem Íris Helga sagði Maðurinn sagði að hann hefði trúað því á þeim tíma sem brotin áttu sér stað að Íris Helga og dóttir hennar hefðu orðið fyrir raunverulegum skaða af hendi brotaþola í málinu. Hann hafi ekki vitað af öðrum brotum sem Íris Helga er sökuð um, svo sem að stofna falska reikninga á samfélagsmiðlum til að dreifa níði um mennina og fjölskyldur þeirra. Maðurinn lýsti að hann hefði meðal annars séð myndefni frá Írisi þar sem falskir reikningar væru að áreita hana…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS