Fyrstu kjörstöðum lokað í Bandaríkjunum
What the source reports
Fyrstu kjörstöðum hefur verið lokað á austurströnd Bandaríkjanna. Von bráðar munu fyrstu tölur koma í ljós. Kjörstaðir í síðustu fylkjunum, þ. e. í Alaska og á Hawaii, loka ekki fyrr en klukkan sex að íslenskum tíma. Það þýðir þó ekki að endanleg úrslit muni liggja fyrir snemma á morgun, það fer allt eftir því hversu mjótt verður á munum. Í síðustu miðkosningum, árið 2022, tók til dæmis rúma viku að fá afgerandi niðurstöðu. 75% óánægðir eða reiðir Flestir kjósendur segja efnahagsmálin sitt helsta áhyggjuefni. Rúmlega 79 þúsund manns voru spurðir hvaða málefni væri þeim mikilvægast í kosningunum í könnun á kjörstöðum. Um 39% sögðu efnahagsmál.
Næst flestir nefndu stöðu lýðræðisins eða 32% og þar á eftir voru innflytjendamál en 14% nefndu þau. Heilbrigðismál, utanríkismál og glæpir voru nefnd mun sjaldnar. Fyrirtækið SSRS framkvæmir könnunina sem tekur bæði til þeirra sem kusu utan kjörfundar og þeirra sem kusu á kjördag, fyrir hönd samsteypu bandarískra fjölmiðla. Samkvæmt könnuninni eru 75% kjósenda óánægðir eða reiðir vegna stöðu Bandaríkjanna. Ólíkar reglur um talningu atkvæða Mismunandi reglur gilda um móttöku og vinnslu kjörseðla í ólíkum ríkjum Bandaríkjanna. Talning getur þar af leiðandi gengið mishratt fyrir sig eftir ríkjum. Þá getur líka haft áhrif hversu margir kjósa utan kjörfundar. Í flestum ríkjum er…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗