One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Högg: Sannsögulegt og áleitið á yfirborðinu

Högg: Sannsögulegt og áleitið á yfirborðinu

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 2:00 PM
Högg: Sannsögulegt og áleitið á yfirborðinu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 2:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Karl Ágúst Þorbergsson skrifar: Högg eftir breska leikskáldið James Graham var frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í síðustu viku. Leikritið er byggt á sannri sögu Jacobs Dunne sem varð James Hodgkinson að bana með einu hnefahöggi árið 2011. Í verkinu fáum við að kynnast æsku og lífi Jacobs í erfiðum aðstæðum í lágstéttahverfi í Nottingham á Englandi. Jacob lifir og hrærist í heimi ofbeldis, djamms og eiturlyfja þar sem markmiðið virðist vera að enda hvert kvöld á slagsmálum. Eitt slíkt kvöld endar einmitt á því að hann kýlir ókunnugan mann, James, einu hnefahöggi sem verður til þess að hann deyr stuttu seinna. Jacob er í kjölfarið dæmdur í fangelsi og þarf að takast á við sjálfan sig og líferni sitt. Stuttu eftir að hann losnar úr fangelsi hafa foreldrar James, Joan og David, samband í gegnum samtök sem bjóða upp á leið til sátta og skilnings í gegnum stýrt samtalsferli.

Í gegnum þessi samskipti þarf Jacob að horfast í augu við líf sitt og ákvarðanir og hvort hann eigi möguleika á annarri framtíð en virðist blasa við honum. Högg er margverðlaunað leikrit sem hefur slegið í gegn á bæði West End og Broadway. Sýningin ber þess enda ákveðin merki; hér er á ferðinni áleitið samtímaverk sem sett er í ákveðinn glansbúning sjónarspilsins. Framvinda sýningarinnar er stöðugt brotin upp með stílfærðum hópatriðum sem eiga að ramma inn stemmningu og stýra upplifun áhorfandans. Það heppnast oft ágætlega en uppbrotin og dansatriðin eru hins vegar svo mörg og svo stílfærð að þau fara fram úr sögunni og kippa áhorfandanum frá innihaldi hennar. Þannig komumst við ekki alveg inn fyrir frásögnina og inn í tilfinningarnar sem grundvalla hana. Það er kannski heldur ekki markmiðið með uppsetningu Þjóðleikhússins því hér er áherslan á að sýna áhorfendum ákveðna sögu, fá þá til að skilja…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS