One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandHvernig afgreiddi meirihlutinn 100 daga listann?

Hvernig afgreiddi meirihlutinn 100 daga listann?

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 4:44 PM
Hvernig afgreiddi meirihlutinn 100 daga listann?
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 4:44 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Hundrað dagar eru síðan Hildur Björnsdóttir varð borgarstjóri þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins tók til starfa. Meirihlutinn birti lista yfir þrjátíu og eitt verkefni sem til stóð að klára innan hundrað daga. Verkefnin eru fjölbreytt og ná til ýmissa sviða. Þar á meðal er lengdur opnunartími frístundaheimila, 60 þúsund króna frístundakort fyrir eldri borgara, hætt við þéttingu í Grafarvogi og samtal hafið við ríkisstjórnina um endurskoðun samgöngusáttmálans. Í lok júlí var aðeins sjö verkefnum lokið en nú hefur verið hakað við hvert og eitt á vefnum Verkefnalisti. is . En hvernig tókst til? Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum frá borginni um hvernig staðið var að hverju verkefni. Afrakstur sumra þeirra sést víðs vegar um borgina, líkt og fjölgun bekkja í borgarlandinu og fækkun aðskotahluta úr bílastæðum í miðborginni.

Sum hafa verið samþykkt og þegar innleidd og önnur eru skilgreind sem áframhaldandi verkefni en tilteknum áfanga telst lokið. Afgreiðslu sumra þeirra telst lokið á verkefnalistanum þó að breyta þyrfti reglugerð til að hrinda endanlegu markmiði í framkvæmd og einu telst lokið með auglýsingu og „óformlegum samtölum“. Skólamálin í brennidepli Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur sagt brýnt að ráðast í grunnskólamálin, ekki síst eftir að niðurstöður nýjustu PISA-könnunar sýndu verstu frammistöðu íslenskra grunnskólabarna hingað til . Meðal aðgerða ríkisstjórnarinnar til að bregðast við þessum niðurstöðum er símafrí í grunnskólum og það er líka ofarlega í huga borgarstjórnar. Grunnskóla- og frístundamál Setja mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð. Samþykkt á fundi skóla- og frístundasviðs 22. júní að Matsferill Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu verði lagður fyrir í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS