One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers

Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 9:00 PM
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 9:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Íbúar í Norðurþingi eru ósammála um fyrirhugað vindorkuver að Hnotasteini. Framkvæmdaraðilar lofa sveitarfélaginu tekjum og íbúum störfum. Franska fyrirtækið Qair stóð fyrir opnum kynningarfundi á vindorkuveri á Hnotasteini á Raufarhöfn í dag og á Kópaskeri í gær. Fundirnir voru vel sóttir og stóðu í þrjá og fjóra tíma. Íbúum stendur greinilega ekki á sama hvort vindorkugarður rísi á Hólaheiði. Hart var tekist á á kynningarfundi um vindorkuver að Hnotasteini í Norðurþingi í dag. Íbúar hafa skiptar skoðanir og óska eftir hlutlausum íbúafundi án aðkomu fyrirtækisins sem áformar uppbygginguna. Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Norðurhjara, telur að sífellt fleiri séu á móti vindorkuverinu.

„Ég held að það séu fleiri og fleiri að verða móti þessu þegar þeir gera sér grein fyrir því hvað þetta er stórkostlegt, hvað það er mikil mengunarhætta og hvað þetta skerðir myrkrið og víðáttuna sem við höfum hér. “ Milljarða tekjur og hundruð ársverka Á fundunum var kynnt 230 blaðsíðna umhverfismatsskýrsla. Að mati Qair mun framkvæmdin hafa mjög jákvæð áhrif á samfélagið í Norðurþingi. „Þetta eru fjölmörg störf sem geta skapast af þessu verkefni, mjög mikil fasteignagjöld sem skapast og útsvarstekjur í tengslum við þessi störf til að mynda og margir fleiri þættir sem farið er yfir í matsskýrslunni,“ segir Arnór Tumi Jóhannsson, verkefnastjóri vindorkugarðsins að Hnotasteini. Talað er um milljarða tekjur sveitarsjóðs Norðurþings og hundruð ársverka á svæðinu í tengslum við uppbygginguna. Kjartan Páll Þórarinsson, formaður byggðarráðs Norðurþings, segir sveitarfélagið opið fyrir fjölbreyttum tækjum til að efla byggðina. „Við erum sveitarfélag sem hefur lent í alls konar áföllum í gegnum tíðina. Við höfum misst kvóta nánast úr öllum byggðarlögum og þekkjum…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS