Íslenskur íþróttamaður féll á lyfjaprófi vegna peptíða
What the source reports
Notkun ólöglegra peptíða hefur færst í aukana síðustu misseri. Sérfræðingar segja ómögulegt að vita hvað er í efnunum sem seld eru á svörtum mörkuðum á samfélagsmiðlum. Innkirtlasérfræðingur sagði í fréttum okkar á föstudag að ólöglegu efnin gætu valdið krabbameinum, nýrna- og/eða lifrarbilun, hjartasjúkdómum og valdið ofnæmi og sýkingum. Seljendur fullyrða að efnin stuðli að þyngdartapi og bættri frammistöðu í íþróttum til dæmis. Vinna að fræðslu fyrir ungmenni „Við höfum miklar áhyggjur af sérstaklega ungra íþróttaiðkenda inn í þetta og áhuga þeirra. Í framhaldi af því höfum við verið að undirbúa fræðsluefni og forvarnarefni sem er hugsað fyrir bæði framhaldsskóla og grunnskóla landsins,“ segir Skúli Skúlason, lyfjafræðingur og stjórnarformaður Lyfjaeftirlits Íslands.
Auk fræðsluefnis lyfjaeftirlitsins er heilbrigðisráðuneytið að vinna að reglugerð sem bannar sölu efnanna. „Það var stöðvaður umfangsmikill innflutningur í vor, það voru óhrein efni og gölluð. Það getur verið að innihaldsefnin séu allt önnur en fólk heldur. Við gjöldum auðvitað varhug við notkun þessara efna,“ segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra. Dæmi um 15 ára að auglýsa efnin „Það sem við höfum heyrt og orðið áskynja er að einstaklingar alveg niður í 15 ára aldur sem hafa verið að auglýsa efnin, jafnvel sýna þeim mikinn áhuga á TikTok og öðrum samfélagsmiðlum,“ segir Skúli. Fræðsluefnið sem Lyfjaeftirlitið undirbýr er um lyfjamisnotkun, líkamsímynd og samfélagsmiðla. Þar kemur fram að peptíð séu markaðssett sem skyndilausnir, minni fita, meiri vöðvar og hraðari bati. En efnin séu ekki öll örugg eða lögleg, mörg lítið rannsökuð og sum bönnuð í íþróttum.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗