Kristrún ætlar að ræða við Trump um samskipti ríkjanna
What the source reports
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar að ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar hún hittir hann í New York síðar í mánuðinum. Hún segist gera þá kröfu að fólk virði fullveldi og sjálfstæði landsins. Þetta sagði Kristrún í Kastljósi í gærkvöld þegar hún var spurð út í símtal Trumps og Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, skömmu fyrir síðustu þingkosningar. RÚV greindi frá því í gær að Trump hefði sagt í gamansömum tón að í hópi vina sinna og vandamanna hefði stundum verið rætt um að Ísland væri 51. ríki Bandaríkjanna. Bjarni mun hafa eytt þessu tali og tekið því sem léttu gríni, Trump hafi þó sagt honum að hugsa þetta vel að loknum kosningasigri.
Kristrún vísaði í fyrri ummæli sín, eftir að Trump birti kort af mörgum ríkjum sem voru þakin bandaríska fánanum, þar á meðal Íslandi. Hún sagði þá að undirtónn Trumps væri fáránlegur. „Það liggur hins vegar alveg fyrir að það hafa skilaboð verið að berast frá Bandaríkjunum yfir í okkar heimshluta í talsverðan tíma. Það eru sumir sem vildu ekki taka því alvarlega á sínum tíma þegar hann var að gera athugasemdir eða grínast, myndu kannski einhverjir segja, um Grænland. Við eigum að taka þessu alvarlega þó að sumir myndu segja ekki bókstaflega. “ „Ég hef ekki átt slík samskipti við Bandaríkjaforseta. Það hefur verið gott samband milli mín og Donalds Trumps. Ég er að fara að hitta hann síðar í mánuðinum þar sem ég verð í New York. Ég mun auðvitað ræða þar við hann um samskipti okkar tveggja landa og geri auðvitað bara þá kröfu að fólk virði sjálfstæði…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗