One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Leitin að líki Lúðvíks „gríðarleg vonbrigði“

Leitin að líki Lúðvíks „gríðarleg vonbrigði“

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 6:59 PM
Leitin að líki Lúðvíks „gríðarleg vonbrigði“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 6:59 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í byrjun árs 2024 vill að bæjarstjórn Grindavíkur hafi forgöngu um að lík bróður hans verði grafið upp. Leitin sem ráðist var í í síðustu viku hafi verið fjölskyldunni vonbrigði. „Eins og þetta horfir við okkur, og vert er að taka fram að við fylgjumst með þessu í gegnum fjölmiðla að miklu leyti, þá upplifðu allavega systur mínar og börn Lúlla einhvers konar sjónarspil. Þetta tók stuttan tíma,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Að tilstuðlan lögreglustjórans á Suðurnesjum var ráðist í leit í síðustu viku. Leitin stóð yfir í um sjö klukkustundir. „Ég fæ að vita rétt upp úr átta að það eigi að hefja aðgerðir.

Það eru fréttir fluttar af því laust fyrir hádegi að þá séu sigmenn að fara niður og klukkan kortér í fjögur fæ ég símtal frá lögreglustjóra, þar sem hún upplýsir mig um að aðgerðum sé lokið og ákvörðun liggi fyrir um að leita ekki meira,“ segir Elías. Hann hafi furðað sig á hversu stuttan tíma leitin hafi tekið. Vill að leitinni verði haldið áfram Elías segist ekki hafa fengið nánari upplýsingar um leitina fyrr en nokkrum dögum síðar, þegar honum barst tölvupóstur frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. „Þar kemur fram að áður en farið var í holuna hafi legið fyrir ákvörðun um að ef ekkert sæist ofan á jarðvegi eða væri algjörlega sýnilegt yrði ekkert meira aðhafst,“ segir Elías og heldur áfram. „Ég held að allir geti sett sig í þau spor okkar að það voru náttúrlega alveg gríðarleg vonbrigði. Við höfðum einhverjar væntingar um að þarna yrði farið niður og aðstæður metnar og svo myndu menn íhuga næstu skref. “ Á næstu dögum ætlar Elías að fara þess á leit við…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS