One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Margt skemmtilegt sem bíður mín

Margt skemmtilegt sem bíður mín

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 6:00 AM
Margt skemmtilegt sem bíður mín
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 6:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Elísa lék sinn síðasta fótboltaleik á föstudagskvöld þegar Breiðablik tók á móti FH í lokaumferð Bestudeildarinnar. Henni var skipt af velli eftir klukkutíma leik og hvað fór í gegnum huga hennar á því augnabliki? „Það var gríðarlega mikið af tilfinningum sem þyrmdu yfir. En það var samt gott að við tryggðum okkur þetta á mánudeginum, því þá fór ég í gegnum fyrstu tilfinningarnar og náði að undirbúa mig vel undir leikinn á föstudaginn,“ segir hún í samtali við RÚV. „En að sjálfsögðu frekar yfirþyrmandi,“ bætir hún við. Elísa Viðarsdóttir lagði skóna á hilluna á föstudag eftir 20 ár í meistaraflokki, 402 leiki í efstu deild hér á landi og 54 landsleiki. Það var tilfinningaríkt að kveðja en framundan er líka margt skemmtilegt. 20 ár á efsta stigi - EM og titlarnir með systur hennnar standa upp úr Leiktíðin í ár var sú 20. hjá Elísu.

Ferillinn hófst hjá ÍBV þaðan sem hún fór til Kristianstad í Svíþjóð. 2016 fór hún svo í Val þar sem hún var þar til á þessari leiktíð. Það er því margs að minnast. „Þá kannski ber helst að nefna stórmótin með landsliðinu. Annað sem situr eftir er Íslandsmeistaratitillinn með Val þegar ég spilaði með mínum allra bestu vinkonum og frábærum íþróttakonum og þar ber helsta að nefna Margréti systur [Margrét Lára Viðarsdóttir] þar sem við vorum að koma tilbaka báðar eftir krossband og barneignir. Að fá að lyfta titlinum með henni var algjörlega einstakt. “ Ekki sjálfgefið að skipta um lið á þessum aldri Elísa skipti óvænt um félag upp úr áramótum þegar stjórn Vals breytti um kúrs og skipti eldri og reyndari leikmönnum út fyrir yngri. Valur féll og Breiðablik varð Íslandsmeistari. „Það var alveg komið upp í myndina að ég myndi segja þetta gott. Það er ekkert sjálfgefið að skipta um lið á þessum aldri og að finna sér sinn stað. Eftir fyrstu æfinguna…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS