One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september

Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 1, 2026, 6:54 PM
Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 1, 2026, 6:54 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Færri nýttu sér matarþjónustu Reykjavíkurborgar í haust í samanburði við sama tíma í fyrra. Verð máltíðanna var hækkað um allt að 72% í september. Velferðarsvið rekur matarþjónustu sem er bæði veitt í mötuneytum og með því að senda mat heim til fólks. Heimsendar máltíðir eru fyrir þá sem ekki geta eldað sjálfir – til dæmis vegna aldurs eða fötlunar – og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöðvum. Eftir að verð hækkaði hafa færri máltíðir selst. Samkvæmt svari velferðarsviðs við fyrirspurn fréttastofu fækkaði seldum máltíðum um 10,7% á milli ágúst og september. Sé miðað við júlímánuð frekar nemur fækkunin í september 15,2%.

„Fækkunin varð sérstaklega áberandi milli ágúst og september, þegar heildarfjöldi pantana dróst saman úr 26. 107 í 23. 304, eða um 10,7%. Mötuneytispöntunum fækkaði um 1. 857, eða 11,4%, og heimsendum máltíðum fækkaði um 946, eða 9,7%. “ Tölurnar fyrir 30. og 31. október eru ekki með í tölfræðinni fyrir októbermánuð. Heildarfjöldi pantana í október er því vanmetinn og ekki að fullu samanburðarhæfur við fyrri mánuði. Í upphafi september var einnig gerð breyting á opnunartíma mötuneytisins við Lindargötu því þar er nú lokað um helgar. Aðsókn í mötuneytið hafði verið mest um helgar, samkvæmt svari borgarinnar. Áætlað er að breytingin hafi leitt til fækkunar um 1. 400 matarskammta á mánuði. Þetta gæti skýrt stóran hluta fækkunar…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS