One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn

Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 5:15 PM
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 5:15 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Atvinnuleysi er að aukast og fréttir af uppsögnum verða tíðari. Reykjavíkurborg sagði upp 50 manns í hópuppsögn í vikunni og hefur lagt niður 130 stöðugildi síðan í vor. Vinnubrögð við uppsagnirnar hafa sætt gagnrýni en hvernig er hægt að standa að slíkum aðgerðum þannig að skaðinn verði sem minnstur? Kastljós ræddi við Ragnhildi Bjarkadóttur, sálfræðing og sérfræðing í vinnuvernd og einn eiganda stofunnar Auðnast. Hún segir uppsagnir eðli málsins samkvæmt alltaf sársaukafullar. Góður undirbúningur, heiðarleiki og stuðningur geti þó hjálpað fólki að vinna úr þeim. Þá þurfi að þjálfa þau sem flytja starfsfólkinu tíðindin. „Hér þurfum við að kenna fólki að miðla mjög sársaukafullum upplýsingum, því það er erfitt að vera í þessum aðstæðum. “ Fólk fái tækifæri til að kveðja Ragnhildur segir mikilvægt að starfsfólk upplifi heiðarleika og sanngirni.

Viðbrögðin geti þó verið ólík enda ógni uppsögn öryggi fólks. Uppsagnir geta haft langvarandi áhrif á heilsu og líðan fólks ef illa er að þeim staðið, segir sérfræðingur í vinnuvernd. Tryggja þurfi að fólk geti kvatt vinnustaðinn með reisn og hlúa sérstaklega að þeim sem sitja eftir. Spurð hvort nauðsynlegt sé að fólk yfirgefi vinnustaðinn umsvifalaust eftir uppsögn, eins og dæmi eru um, segir hún það fara eftir eðli starfseminnar, meðal annars hvort þar sé unnið með viðkvæmar upplýsingar. Jafnframt þurfi þó að tryggja fólki tækifæri til að kveðja samstarfsfólk og vinnustaðinn. „Ímyndum okkur að við séum búin að vinna á einhverjum vinnustað í áratug og allt í einu færðu uppsögn. Þú ert að kveðja annað heimilið þitt. Við þurfum að fá tækifæri til að kveðja með reisn. “ Ragnhildur tekur ekki afstöðu til þess hvernig staðið hafi verið að uppsögnunum hjá Reykjavíkurborg, enda þekki hún ekki forsendurnar. Það sé þó eðlilegt að allur…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS