Ný stjarna fædd
What the source reports
Andreas Almgren er 31 árs Svíi sem hóf ferilinn sem 800 metra hlaupari og keppt á EM í frjálsíþróttum í þeirri grein árið 2014 og á HM ári síðar. Svo gufaði hann hins vegar upp á stórmótum þar til árið 2022 að hann kom á EM og varð fjórði í 5000 metra hlaupi. Hann vann svo brons í 10. 000 metra hlaupi á HM í fyrra og fylgdi því eftir á EM í Birmingham í ágúst með fáheyrðum yfirburðum í 10. 000 metra hlaupinu.
Almgren hringaði alla keppendur á EM um mitt hlaupið og kom í mark langt á undan öllum öðrum og setti samt mótsmet. Hann bætti svo um betur þegar hann varð heimsmeistari í hálfu maraþoni í Kaupmannahöfn í september á 58 mínútum og sex sekúndum. Svo ákvað hann að prófa að hlaupa heilt maraþon í fyrsta sinn um helgina í New York maraþoninu, einu stærsta hlaupi ársins. Þar skákaði hann hann fjölmörgum sterkum keppendum og kom 15 sekúndum á undan næsta manni í mark á tveimur…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗