One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Óbærileg staða valdalausra og undirsettra kvenna

Óbærileg staða valdalausra og undirsettra kvenna

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 2:00 PM
Óbærileg staða valdalausra og undirsettra kvenna
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 2:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir, að elta draumana og tilfinningarnar, láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði, sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál, en það voru sakamál þar sem sannað þótti að kona hefði leynt barnsfæðingu, myrt barnið eða borið það út, stundum í vitorði með barnsföður. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvin og höfuðið sett á stjaka. „Ástæðan fyrir að dulsmál urðu vandamál voru þessar hörðu refsingar gegn framhjáhaldsbrotum giftra. Og það er það sem er svo sorglegt vegna þess að í dag, á 21. öldinni, þá eru þessi brot ekki brot. Afleiðingar brotanna voru svo alvarlegar fyrir fólk að því greinilega fannst það borga sig að ganga lengra til að leyna þessum brotum.

Það sorglegasta sem ég skynjaði var hvað vinnukonurnar voru í erfiðri stöðu, því oft höfðu þessir bændur öll ráð í hendi sér og reyndu að koma í veg fyrir að þeir yrðu dæmdir. “ Heimildir úr dómabókum og kirkjubókum Dauðadæmd er þriðja bók Guðnýjar en fyrsta bók hennar, Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu, kom út 2013. Fyrir hana hlaut hún Fjöruverðlaunin og bókin var einnig tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis. Önnur bók Guðnýjar, A Tale of a Fool? A Microhistory of an 18th-Century Peasant Woman, kom út hjá Routledge-forlaginu 2019. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni þá varð þetta bara svo mögnuð saga og þetta var svo magnað óréttlæti,“ segir Guðný sem smíðar sögu Oddnýjar með ógrynni heimilda á borð við dómabækur og kirkjubækur. Með því að rekja baksögu málsins varpar Guðný ljósi á óbærilega stöðu valdalausra og undirsettra…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS