One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Rússar harma orð Þorgerðar Katrínar

Rússar harma orð Þorgerðar Katrínar

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 8:15 AM
Rússar harma orð Þorgerðar Katrínar
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 8:15 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um skrif Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Flokks fólksins, sem hún lét falla á Alþingi í gær hafa valdið rússneska sendiráðinu bæði undrun og harmi, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins. Skrif um hermenn og kjarnorkuvopn rötuðu inn á þing Heimir Már skrifaði athugasemd við færslu Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, og hvatti hann til að senda hermenn til Úkraínu til að berjast við Rússa og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin. Hann eyddi síðar færslunni og baðst afsökunar.

Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í orð Heimis Más. Hann sagði þau geta valdið Íslandi orðsporsáhættu. Þorgerður Katrín sagðist ekki sjá ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más. Hún hafði orð á því að enginn í stjórnarandstöðunni hefði haft orð á því þegar fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda hefði deilt færslu Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, sem hefði agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit Atlantshafsbandalagsins sem ætti að auka öryggi á norðurslóðum. Þar vísaði hún líkast til Ólafs Ragnars Grímssonar. Rússarnir bregðast við Rússneska sendiráðið…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS