Rússlandsher drap 29 manns í árás á hjálparmiðstöð
What the source reports
Rússlandsher drap hið minnsta 29 manns í sprengjuárás á hjálparmiðstöð í þorpinu Komyshuvakha í Zaporísja-héraði í gær, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum. Tíu manns eru særðir eftir árásina og 48 er saknað. Héraðsstjórinn segir að í það minnsta níu 3. 000 kílóa sprengjum hafi verið varpað á þorpið. Volodymyr Zelenský Úkraínuforseti segir að eftir að Rússar hafi gert fyrstu árásina á skóla sem væri nýttur sem hjálparmiðstöð hafi önnur árás verið gerð á stað þar sem fólk leitaði skjóls.
Zelenský sagði í kvöldávarpi sínu að það hafi ekki getað farið fram hjá Rússum að íbúar þorpsins, sem enn eru eftir þar, fái mannúðaraðstoð í skólanum í hverri viku. Þá lýsti Zelenský yfir vonbrigðum yfir að eftir vopnahlé í bænum Oleshky í síðustu viku hefði verið tækifæri til að taka næstu skref í átt að friði en að það hefði ekki verið gert. Með drápum sem þessum sendi Rússland andstæð skilaboð. Rússar sagðir hafa sært 62 í árás á heilbrigðisstofnun í nótt Í nótt gerði Rússlandsher árás á heilbrigðisstofnun í borginni Kharkiv í samnefndu héraði og særði 62 manns. Flytja þurfti um 200 sjúklinga á brott, hefur úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent eftir yfirvöldum. Kharkiv er næststærsta borg Úkraínu. Þar býr um 1,4 milljón manna.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗