One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Sánchez segir lestarslys mikið áfall – 30, hið minnsta, látnir

Sánchez segir lestarslys mikið áfall – 30, hið minnsta, látnir

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 10:08 AM
Sánchez segir lestarslys mikið áfall – 30, hið minnsta, látnir
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 10:08 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, segir mannskætt lestarslys í morgun vera mikið áfall. „Ég er miður mín yfir þessu alvarlega lestarslysi í Toledo,“ sagði Sanchez í færslu á samfélagsmiðlum. Hann sendi hlýjar kveðjur til þeirra sem lentu í slysinu og fjölskyldna þeirra. 30 manns, hið minnsta, biðu bana þegar tvær hraðlestir lentu í árekstri suður af Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Tveir lestarvagnar fóru út af lestarteinunum. Enn er verið að meta aðstæður á slysstað. Talsmaður yfirvalda í Castilla-La-Mancha-héraði sagði við fjölmiðla að mögulega eigi eftir að koma í ljós að fleiri hafi farist í slysinu.

Forsætisráðherra Spánar segir lestarslys í morgun vera mikið áfall. Þetta er annað mannskæða lestarslysið í landinu á árinu. Tvær hraðlestir lentu í árekstri og 30 manns, hið minnsta, fórust. 544 farþegar voru í lestunum tveimur. Verið að rannsaka tildrög slyssins. Spænski fjölmiðillinn El País greinir frá því að mögulega megi rekja það til mannlegra mistaka. Eitthvað hafi komið upp í öryggiskerfi lestarkerfisins og því hafi átta lestir stoppað. Þeim var síðan leyft að halda áfram. Ekki tókst að koma annarri lestinni, sem lenti í árekstrinum, af stað. Þrátt fyrir það hafi hin lestin fengið skipun um að leggja…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS