One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Sérlega sæt tilfinning að slá Íslandsmet í fyrsta sinn

Sérlega sæt tilfinning að slá Íslandsmet í fyrsta sinn

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 10:58 AM
Sérlega sæt tilfinning að slá Íslandsmet í fyrsta sinn
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 10:58 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Birnir Freyr Hálfdánarson sem er tvítugur bætti um helgina 23 ára Íslandsmet í 200 metra fjórsundi í 25 metra laug þegar hann synti á 1:57,57. Hann bætti þar með met Arnar Arnarsonar frá 2003 um 34 hundruðustu hluta úr sekúndu. En hvernig er að slá svona gamalt Íslandsmet? „Að sjálfsögðu er miklu skemmtilegra að ná metum sem maður hefur ekki átt áður. Það er alltaf gaman að slá Íslandsmet en það er ekki jafngaman að slá sama metið fjórum sinnum. Það er sætara þegar maður nær því í fyrsta sinn. “ Birnir Freyr Hálfdánarson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar náði lágmarki inn á heimsmeistaramótið í 25 metra laug um helgina. Það gerði hann með því að slá Íslandsmet sem staðið hafði frá 2003.

Með árangrinum um helgina vann Birnir sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug sem verður í Beijing í Kína í byrjun desember. „Við vorum að keppast um eitt sæti inn á HM og ég var búinn að reikna út hvað ég þyrfti, sem var þá eitthvað um 1:57. Ég kom mjög ánægður í bakkann og vissi að það hefði gengið vel. “ Birnir segir að fyrri hluti árs hafi verið undir hans væntingum, meðal annars Evrópumótið í 50 metra laug, en núna sé hann á góðum stað og vonist til að taka það með sér inn á HM. „Ég ætla að halda áfram að bæta mig og komast eins nálægt undanúrslitum og ég get á því móti. “ Hörð keppni en stefnan sett á Ólympíuleikana Stóra markmiðið er svo að komast inn á Ólympíuleikana eftir tæp tvö ár í Los…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS