One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Situr enn í strákunum hve grátlega þeir voru nálægt sigri á Dönum

Situr enn í strákunum hve grátlega þeir voru nálægt sigri á Dönum

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 6:30 AM
Situr enn í strákunum hve grátlega þeir voru nálægt sigri á Dönum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 6:30 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ísland tekur fyrstu skrefin að Evrópumóti karla í handbolta 2028 næstu daga. Strákarnir okkar voru grátlega nærri verðlaunasæti á síðasta Evrópumóti. Liðið var nærri því að slá út verðandi Evrópumeistara Dana í undanúrslitum. Gísli Þorgeir Kristjánsson ræddi drauma landsliðsmanna um verðlaunasæti og Ólympíuleika. Leikstjórnandinn knái lék glimrandi vel á EM og segir tapið gegn Dönum sitja í mönnum. Leikirnir tveir: Ísland - Úkraína - miðvikudag - 19:20 - RÚV2 Eistland - Ísland - laugardag - 15:50 - RÚV Ísland hefur undankeppni fyrir EM 2028 í handbolta á næstu dögum með tveimur leikjum. Gísli Þorgeir Kristjánsson ræddi drauma liðsins og fór yfir Evrópumótið í byrjun árs, þar sem Ísland var grátlega nálægt verðlaunasæti. Allir vegir færir Eftir afar jafnan leik í undanúrslitum unnu Danir að lokum 31-28 sigur. Gísli komst í úrvalsliðið er Ísland endaði í 4. sæti á síðasta EM.

Þetta var í fyrsta sinn frá 2010 sem Ísland komst í undanúrslit á stórmóti. Gísli telur leikina í undankeppninni núna vera mikilvægt fyrsta skref til að leiðrétta það sem þarf að laga fyrir næsta stórmót. „Það sem situr meira eftir er hvað við vorum grátlega nálægt því að vinna Danina. Það er svona eitt og annað sem hefði getað farið betur í þeim leik. Af því við vorum svo ótrúlega nálægt því að vinna þá. En sem sýnir líka bara hvað allir okkar vegir eru færir næsta janúar. Þannig að það er einhvern veginn meira svona að breyta því. Þessir litlu hlutir sem hefðu getað farið betur í janúar. Að færa þá yfir núna í janúar og virkilega komast aftur á þann stað sem við vorum núna síðast. “ Ekkert lið veitti Dönum jafn mikla mótspyrnu Ísland hefur átt í tiltölulega litlum vandræðum með að komast í milliriðil á stórmótum en á síðasta stórmóti komst Ísland í undanúrslit í fyrsta skipti í langan tíma. Danska…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS