Skagfirðingar æfir yfir hækkun ríkisins á meðan þeir halda að sér höndum
What the source reports
Hækka á kílómetragjaldið um ríflega 15% um næstu áramót. Magnús Barðdal, sveitarstjóri í Skagafirði, segir hækkunina bitna illa á sveitarfélaginu sjálfu og íbúum þess. „Við erum með skólaakstur um allar sveitir, þar sem er gríðarlegur akstur á hverjum degi um allar sveitir til þess að koma börnum í skóla. Svo er þetta auðvitað flutningskostnaðurinn. Fyrir allar þær vörur sem við nýtum hér út á landi. Þetta kemur beint inn í verðlagið þar.
“ Sveitarfélög hækki hóflega Í umsögn Skagafjarðar um frumvarpið um breytingar á kílómetragjaldinu kemur meðal annars fram að hækkun sem þessi hafi bein áhrif á fyrirtæki og heimili, ásamt að hafa áhrif á þjónustusamninga sveitarfélagsins, til dæmis um skólaakstur. Þá segir Magnús skrítið að sveitarfélög haldi að sér höndum í gjaldskrárhækkunum á meðan ríkið hækkar kílómetragjaldið um ríflega 15%. „Sveitarfélögin hafa stigið fram og lagt sín lóð á vogarskálarnar til þess að halda niðri verðbólgu og reyna að ná tökum á þessum verðbólgutölum sem eru að leika ríki, sveitarfélög og almenning í landinu mjög grátt, með því að hækka gjaldskrárnar aðeins um 2,5%. Það er því blaut tuska fyrir okkur sveitarfélögin að fá svona ríflega hækkun á gjaldi sem skilar sér bara í auknum kostnaði fyrir íbúa og sveitarfélagið. “ Hann vísar þarna til sameiginlegs átaks sveitarfélaga landsins að hækka gjaldskrár ekki nema um…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗