One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi

Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 6:10 PM
Starfsmaður fékk maka sinn til að sinna ræstingum í leyfisleysi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 6:10 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ræstingafyrirtækið iClean gaf út vinnustaðaskírteini fyrir allt starfsfólk sitt eftir vinnustaðaeftirlit Eflingar í grunnskólum Mosfellsbæjar í haust. Stéttarfélagið hafði tilkynnt sveitarfélaginu um brot á lögum um vinnustaðaskírteini. „Við eftirlitið kom jafnframt í ljós að starfsmaður iClean hafði fengið maka sinn, sem er ekki starfsmaður fyrirtækisins, til að sinna störfum í sinn stað án vitundar eða leyfis stjórnenda. Slíkt er með öllu óheimilt samkvæmt reglum iClean og var starfsmaðurinn áminntur skriflega,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrirtækið segist hafa brugðist við atvikinu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur gagnrýnt Mosfellsbæ, sem útvistar ræstingum í stofnunum bæjarins til iClean, harðlega.

Stéttarfélagið krafðist þess að fá afhent gögn til að fylgjast með því að farið væri að lögum og kjarasamningum við útvistun þrifa. Mosfellsbær fór í framhaldinu fram á að iClean afhenti Eflingu gögn. Efling fór í vinnustaðaeftirlit í þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í haust. Þar voru sex starfsmenn án vinnustaðaskírteinis og í ljós kom að einn starfsmaður var ekki í ráðningarsambandi við iClean. Þrátt fyrir það var hann með aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu. „Fyrirtækið hefur upplýst Mosfellsbæ um viðbrögðin við atvikinu. Í svari sveitarfélagsins kemur fram að það telji fyrirtækið hafa tekið á atvikinu af festu,“ segir í yfirlýsingu iClean. Þá segir að makinn sé með hreint sakavottorð, líkt og allt starfsfólk fyrirtækisins. IClean kveðst hafa afhent Mosfellsbæ gögn um launakjör starfsfólks og skipulag ræstinga í stofnunum sveitarfélagsins. „Sveitarfélagið hefur móttekið gögnin og telur þau í samræmi við kröfu sveitarfélagsins um afhendingu á gögnum. iClean…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS