„Sum hverfi eru ekki til lengur“
What the source reports
Íbúar úkraínska bæjarins Oleshky eru loks komnir á öruggara svæði eftir margra mánaða umsátur Rússlandshers. Það var langþráð stund þegar fólk steig út úr rútunni í dag. Leiðin var líka löng því það er stórhættulegt og ófært með öllu að fara beint yfir víglínuna. Frá bænum sínum fóru þau með rútu til Anapa í Rússlandi. Þaðan var þeim flogið til Gomel í Belarús og komust þar loks upp í rútuna sem flutti þau yfir landamærin aftur til Úkraínu. Íbúar sem komust loks á brott frá bænum Oleshky í gær eru komnir á öruggara svæði í Úkraínu. Rússlandsher hafði setið um bæinn síðan í maí, og fólkið var farið að svelta. „Margt fólk er horfið. Mörg eru dáin. Sum stigu á jarðsprengjur. Borgin er stráð jarðsprengjum. Sum hverfi eru ekki til lengur,“ segir Valeriy Kupayev sem flúði Oleshky. Óljóst er hversu mörg fóru en aldursbilið er breitt.
Elsti íbúinn er 94 ára og sá yngsti rétt orðinn eins árs. Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hafði milligöngu um vopnahlé í bænum. Umsátur í marga mánuði Rússlandsher náði honum 2022 en herti umsátur um hann í maí. Neyðin var orðin mikil og fólk farið að svelta en Rússar hleyptu hvorki mat, lyfjum, hreinu vatni né öðru inn. Ástvinir biðu sumra, en annarra ekki. „Við eigum ekki neitt. Við vitum ekki hvar við getum búið. Við höfum engan samastað hérna heldur,“ segir Mykhailo. Seint í gær bárust svo fregnir sem stjórnvöld í Úkraínu hafa beðið eftir lengi. Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum - fyrir allt að 2,1 milljarð dollara, eða andvirði 250 milljarða íslenskra króna. Hvernig virkar Patriot-kerfið? Patriot-loftvararkerfið er í þrennu lagi. Radarstöð fylgist með loftförum í um 100 kílómetra fjarlægð og…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗