Tíst Lavrovs alvarlegra en tíst Heimis Más
What the source reports
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sér ekki ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más Péturssonar á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann eggjaði Frakklandsforseta til að hóta kjarnorkuvopnaárás á Rússland. Hún hafi hins vegar mun meiri áhyggjur af því að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hafi dreift færslu frá utanríkisráðherra Rússlands. Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í færslu Heimis Más í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi. Heimir Már baðst afsökunar á færslunni eftir að um hana var fjallað og eyddi reikningi sínum á X. Stefán Vagn sagði færslu Heimis Más grafalvarlega í ljósi þess að hann gegni ábyrgðarstöðu fyrir einn af þremur ríkisstjórnarflokkum.
Velti hann því upp hvort færslan geti valdið Íslandi orðsporsáhættu og hvort utanríkisráðherra hafi rætt ummælin við samstarfsflokkana í ríkisstjórn. „Er það bara nægilegt að viðkomandi segi bara: Nei, ég hefði kannski ekki átt að gera þetta og ég lofa því að gera þetta ekki aftur og svona til að tryggja að þetta gerist ekki þá er ég hættur á þessum miðli. Eru það einu viðbrögð okkar í þessu máli? “ spurði Stefán Vagn. Þorgerður Katrín sagði færslu Heimis Más ekki í neinu samræmi við stefnu Íslands. Það lægi skýrt fyrir að Ísland væri fylgjandi kjarnorkuafvopnun. Hún ítrekaði að Heimir Már hefði beðist afsökunar á færslunni en undraðist á sama tíma að stjórnarandstaðan hefði tekið þetta mál upp en látið aðrar og alvarlegri færslur á X liggja á milli hluta. „Þá sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗