One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Tveir þjóðernispópúlistar tapa kosningum

Tveir þjóðernispópúlistar tapa kosningum

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 12:01 PM
Tveir þjóðernispópúlistar tapa kosningum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 12:01 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni. Óvæntur sigur Lula Flávio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forseta Jair Bolsonaros, fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninga í Brasilíu og flestir bjuggust við því að hann ynni auðveldan sigur í síðari umferðinni á sunnudag. Svo fór þó ekki, stuðningsfólki Lula da Silva forseta tókst að boða út fjölmennt lið ungs fólks sem kallaði sig „Her Lulas“ ( Exército do Lula ). Þau stofnuðu WhatsApp-hóp sem náði mikilli útbreiðslu og vinsældum.

Her Lulas tókst að ná forystunni í kosningabaráttunni á samfélagsmiðlum og snúa undanhaldi í sókn. Lula fékk 51,8 prósent atkvæða í síðari umferðinni. Bolsonaro neitar að viðurkenna ósigur og flúði úr landi Flávio Bolsonaro tók ósigrinum illa og kenndi kosningasvindli um, sagði að ekki væri möguleiki að Lula hefði tekist að bæta við sig jafn miklu fylgi og raun bar vitni frá fyrri umferðinni til hinnar síðari. Hann flúði úr landi til Bandaríkjanna þar sem hann sagðist réttkjörinn forseti og glæpamenn hefðu stolið kosningunum og hefðu komið á harðstjórn. Bolsonaro sætir rannsókn fyrir spillingu og peningaþvætti og dómstóll hafði bannað honum að fara úr landi. Trump veitir Bolsonaro landvistarleyfi en er varkár í tali um kosningarnar Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur veitt fjölskyldunni leyfi til að dvelja þar. Bolsonaro segist ætla að leiða stjórnarandstöðuna úr sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum. Hann neitar að hafa flúið land. BBC hafði eftir honum að…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS