One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Veisla 3: „Gleðin er stór og sorgin er djúp en í raun gerist ósköp fátt“

Veisla 3: „Gleðin er stór og sorgin er djúp en í raun gerist ósköp fátt“

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 4:00 PM
Veisla 3: „Gleðin er stór og sorgin er djúp en í raun gerist ósköp fátt“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 4:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Sölvi Halldórsson skrifar: Í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu 3, er hinn grunsamlega vel stæði þýðandi LínLín snúinn aftur. LínLín kynntust lesendur fyrst í skáldsögunni Ból, sem hreppti íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2023. Byrjum á höskuldarviðvörun eftir allt sem gekk á í Ból. Í lokin á þeirri sögu gerði sögukonan tilraun til að stytta sér aldur. Ætlaði að dysja sig undir rennandi hrauni sem var við það að tortíma gamla fjölskyldubóli sögukonunnar. Í þeirri sögu fylgdu lesendur LínLín eftir í þá svaðilför, auk þess sem sannleikurinn um hvers vegna hún fann sig knúna til að gera einmitt svo afhjúpaðist smátt og smátt. Veisla 3 tekur upp þráðinn mjög stuttu eftir þá atburði og á fyrstu blaðsíðunni streyma tár niður vanga LínLín. Eins og hún segir okkur er það að gráta ekki eitthvað sem hún hefur lagt í vana sinn til þessa, nema í svefni.

Eðlilega er manneskjan þó slegin eftir öll ósköpin, en það eru ekki bara sorgartár sem falla niður vanga LínLín. Í bland við hin renna nefnilega ölvuð gleðitár. LínLín er orðin ástfangin. Það er ung kona sem LínLín hefur augastað á. Veisla er hún kölluð, sem réttu nafni heitir Visla, og er dóttir konunnar sem þrífur heimili LínLín. Af henni heillaðist hún þegar þær tvær léku fjórhent á flygilinn á heimili LínLín á Seltjarnarnesi og hún er æði spennt fyrir nýju ástinni sinni. Hins vegar hittast þær tvær furðu lítið framan af sögu, svona miðað við lýsingarnar á stóru tilfinningunum sem bærast í brjósti sögukonunnar. Það er gaman að ræða bækur Steinunnar Sigurðardóttur við annað fólk. Textinn er þannig að á honum hefur fólk sterkar skoðanir. Kannski er það vegna þess að það er, eins og stendur á einum stað í Veislu 3, „extra töts alltaf“. Í Veislu 3 eru lykilhugtök lögð fram og (há)stöfuð ofan í lesendur, „loxxxxins“…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS