Vilja ríkið að borðinu í eftirliti með skeldýrarækt
What the source reports
Aðeins eitt fyrirtæki ræktar krækling en minnst tvö gætu hafið störf á skömmum tíma ef lagaramminn væri endurskoðaður, segir sveitarstjóri Reykhólahrepps. Íslensk stjórnvöld hafa í tvígang samþykkt lagasetningu sem ganga gegn hagsmunum kræklingaræktar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á sviði opinberrar stjórnsýslu . Ný rannsókn segir íslensk stjórnvöld í tvígang hafa sett svo þungt regluverk á í kræklingarækt að ljóst hefði mátt vera að greinin gæti ekki þrifist. Sveitarstjóri í Reykhólahrepp segir mikil tækifæri í skeldýrarækt en bæta þurfi eftirlitskerfið. Kjartan Ragnarsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, segir aðeins einn ræktanda virkan sem stendur. „Það er hann Baldur í Hvammsskel, Búðardal, hann er að rækta línu og selur á markað í mjög litlum stíl. En þetta er í raun fyrst og fremst ástríða og áhugi sem keyrir það áfram,“ segir Kjartan.
Hann segir að ekki séu forsendur í dag til að byggja upp greinina í stórum stíl svo hún verði sjálfbær. Sveitarfélög á Vestfjörðum og víðar hafa áður kallað eftir endurskoðun á lagaramma um skeldýrarækt. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra ræddi stöðu lagareldislaga á fjórðungsþingi Vestfirðinga í vikunni sem leið. Unnið er að lagaramma um stórþörungaeldi og stefnt á löggjöf um fiskeldi fyrir lok kjörtímabilsins. Kjartan spurði ráðherra um skeldýrarækt. „Svörin voru á þann veg að nú væri vinna í gangi, að vinna með stórþörungaræktun og þar af leiðandi yrði málefni skeldýraræktar að bíða,“ segir hann. Kjartan segir standa til að funda með ráðherra og fara yfir stöðuna með hagaðilum. Kostnaður og fyrirkomulag heilnæmisrannsókna, matvælaöryggiseftirlits og vöktunar eiturþörunga hefur verið sérstaklega íþyngjandi, segja rannsakendur. Það þarf náttúrulega bara að útlista það nákvæmlega hvernig eftirlitskerfinu skal háttað…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗