Yfirvöld gefa út almannavarnabækling: „Verum viðbúin“
What the source reports
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur í dag út bæklinginn Verum viðbúin , sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland. is og á verumvidbuin. is . Honum verður einnig dreift í prentaðri útgáfu á völdum stöðum um land allt frá miðvikudegi til sunnudags, með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu Neyðarkallsins. Greint var frá gerð bæklingsins í janúar á síðasta ári.
Náttúruhamfarir, rafmagnsleysi og samfélagslegar áskoranir Í tilkynningu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að bæklingnum sé ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig hann geti undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi. Þar eru nefnd sem dæmi náttúruhamfarir, óveður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir. Atburðir á borð við eldgos og jarðskjálfta á undanförnum árum hafi minnt á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast. Jafnframt hafi aukin áhersla verið lögð á viðbúnað almennings víða um Evrópu og á Norðurlöndum. Viðbúnaður ekki einungis verkefni stjórnvalda „Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra. Þegar einstaklingar og fjölskyldur gera einfaldar ráðstafanir til að búa sig undir mögulegar truflanir eykst öryggi samfélagsins í heild,“ er haft eftir Runólfi Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗