Búið að bera kennsl á alla sem létust í lestarslysinu
What the source reports
Búið er að bera kennsl á alla þá sem fórust í lestarslysinu á Spáni á miðvikudagsmorgun. 69 manns létust í slysinu og 200 voru særðir, sumir alvarlega. 54 þeirra sem létust voru Spánverjar og 15 voru erlendir ríkisborgarar. Þar af voru fjórir Bandaríkjamenn, tveir Ástralir, tveir Japanir og einn hver frá Argentínu, Kanada, Frakklandi, Mexíkó, Portúgal, Túnis og Tékklandi. Nokkurn tíma tók að bera kennsl á þá látnu þar sem mörg líkin voru illa farin.
Spænska þjóðvarðliðið kom upp skrifstofum í nálægum borgum og bæjum þar sem ættingjar gátu gefið DNA-sýni svo hægt væri að bera kennsl á þá sem var saknað. Þá var tímabundnum blóðgjafastöðvum einnig komið upp þar sem fleiri þúsund manns mættu og gáfu blóð. Mannleg mistök stjórnstöðvar Lestarslysið er eitt það mannskæðasta í Evrópu á þessari öld. Sextíu og níu manns létust í slysinu þegar hraðlest ók á miklum hraða aftan á kyrrstæða lest með þeim afleiðingum að margir vagnar fóru út af sporinu. Skömmu áður hafði sjálfvirkt stjórnkerfi…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗