One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Fullkomin kvöldskemmtun með hæfilegu magni af einlægni, húmor og groddaskap

Fullkomin kvöldskemmtun með hæfilegu magni af einlægni, húmor og groddaskap

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 2:00 PM
Fullkomin kvöldskemmtun með hæfilegu magni af einlægni, húmor og groddaskap
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 2:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Sjöfn Asare skrifar: Fyrir fullum sal í Bæjarbíói í Hafnarfirði stíga á sviðið þær Selma Björnsdóttir, Salka Sól og Björk Jakobsdóttir. Þær snúa aftur með sýninguna Bíddu bara – þetta reddast, sem er sjálfstætt framhald af sýningunni Bíddu bara sem þær settu á svið 2021 og naut svo mikilla vinsælda að hún var sýnd yfir hundrað sinnum. Þessi nýja sýning lætur sitt ekki eftir liggja og kitlar hláturtaugar áhorfenda í tæpar tvær klukkustundir með hléi. Sviðið er mínímalískt en hlýlegt, tjöldin eru notuð sem leikmunir og skemmtikraftarnir þrír eru klæddir í svört og hvít föt sem eru öll mismunandi en tóna vel saman. Í salnum er létt og góð stemning og strax í upphafi sést að áhorfendur kunna að meta orkuna og húmorinn á sviðinu.

Stjörnurnar þarf vart að kynna, Selma er auðvitað Evróvisíonhetja og súperdíva, Salka Sól hefur gert garðinn frægan með söng og prjónaskap og Björk hefur starfað við leiklist í áraraðir og kom meira að segja að stofnun Hafnarfjarðarleikhússins og Gaflaraleikhússins. Þá eru þær stöllur svo heppnar að vera á mismunandi skeiðum í lífi sínu og búa yfir þeirri færni að geta deilt lífsreynslu á húmorískan og grípandi hátt sem margir tengja við. Björk er orðin amma og hvað er klikkaðra en að þurfa að heyra uppeldisráð frá einhverjum sem þú ólst sjálf upp? Og af hverju þarf að vera edrú þegar maður passar barnabörnin? Ekki var það þannig í hennar ungdæmi. Og Selma er fráskilin, fimmtíu og tveggja ára gella sem er að vinna með blandaða fjölskyldu sem er með fætur í fjórum löndum. Hvaða rugl er það? Svo er Salka Sól ekki búin að sofa út síðan hún eignaðist börn og handóðir prjónarar eru brjálaðir út í hana. Hvernig er ekki hægt að hlæja að þessum aðstæðum? Enginn í salnum gat svarað því, því þær Selma, Björk og Salka eru algerlega á tánum, hoppa í hlutverk…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS