One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandGestir agndofa og með gæsahúð á fyrsta sýningardegi Bayeux-refilsins

Gestir agndofa og með gæsahúð á fyrsta sýningardegi Bayeux-refilsins

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 5:05 PM
Gestir agndofa og með gæsahúð á fyrsta sýningardegi Bayeux-refilsins
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 5:05 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Það er mér sannur heiður að lýsa þessari sýningu á Bayeux-reflinum opna,“ sagði Nicholas Cullinan, safnstjóri breska þjóðminjasafnsins, áður en hann klippti á rauða borðann við sýningarsalinn sem hýsir Bayeux-refilinn. Refillinn, sem er nærri 70 metra langur, sýnir aðdraganda og atburðarás orrustunnar við Hastings 1066. Hann var fluttur frá Frakklandi í skjóli nætur í sumar og kemur nú fyrst fyrir almenningssjónir í Bretlandi allt frá því hann var saumaður fyrir nærri þúsöld síðan. Bayeux-refillinn er kominn fyrir almenningssjónir í Bretlandi í fyrsta sinn frá því að hann var saumaður fyrir nærri þúsöld. Miklar raðir mynduðust við breska þjóðminjasafnið og sumir líkja heimsókn á safnið við að vera á færibandi. Á reflinum endilöngum má finna alls 58 senur.

Þeirra þekktust er ef til vill sú næstsíðasta. Á henni má sjá Harald Guðnason Englandskonung fá ör í augað. „Hér er Haraldur konungur drepinn,“ segir í saumuðum texta fyrir ofan senuna. Fræðimenn greinir á um hvort örin hafi verið í upprunalegri gerð refilsins eða hvort henni hafi verið bætt við á 19. öld. BBC hefur tekið saman skemmtilega tölfræði um refilinn. Þar segir að á honum megi finna 620 karla og sex konur, þar af eru þrjár í aðalmyndefni refilsins en þrjár má finna í bekkjum refilsins sem eru fyrir ofan og neðan senurnar. 737 dýr má finna í reflinum og 93 eða 94 getnaðarlimi – fræðimenn eru ekki á eitt sammála um fjölda þeirra. Viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa. Nú þegar eru miðar á sýninguna uppseldir út þetta ár en hún stendur fram í júlí. Gestir sem BBC hefur rætt við í dag voru margir…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS