Grindavík hafði betur í framlengdum grannaslag
What the source reports
Fjórða umferð Bónusdeildar karla í körfubolta kláraðist í kvöld með tveimur leikjum: Grindavík 104-103 Njarðvík Valur 87-84 Ármann Báðir leikirnir réðust á lokasekúndunum. Í Grindavík skoraði Jeremy Pargo sigurkörfuna þegar þrjár sekúndur voru eftir af framlengingu, og á Hlíðarenda þurftu Valsmenn að standa af sér öflugt áhlaup Ármenninga til að halda sigurgöngunni áfram. Slæm ákvörðun á lokasekúndunum kostaði sigurinn Grindvíkingar voru ellefu stigum yfir í hálfleik, 52-41, en Njarðvíkingar unnu þriðja leikhluta með átta stigum og tóku forystuna snemma í þeim fjórða. Þar fór Makye Richard fyrir sínu liði og Njarðvík náði mest fimm stiga forystu. Grindavík gafst þó ekki upp. Mirza Bulic kom liðinu yfir, 91-90, og Deandre Kane skoraði og fékk villu að auki þegar rétt rúm mínúta var eftir, 94-92. Richard jafnaði með sniðskoti þegar fimm sekúndur lifðu leiks.
Grindavík tapaði boltanum í lokasókninni og Spencer Svejcar fékk tækifæri til að tryggja Njarðvík sigur, en þriggja stiga skot hans geigaði um leið og leiktíminn rann út. Framlengingin var ekki síður dramatísk. Grindavík komst fjórum stigum yfir, 100-96, en Njarðvík vann sig aftur inn í leikinn og Richard kom gestunum yfir, 100-101, þegar hálf mínúta var eftir. Bulic svaraði með tveimur vítaskotum, David Okeke tróð eftir sendingu frá Richard og kom Njarðvík aftur yfir, 102-103, þegar tíu sekúndur voru eftir. Þá tók Jeremy Pargo til sinna ráða og skoraði sigurkörfuna. Njarðvík fékk eitt lokatækifæri en Makye Richard áttaði sig ekki á að hann átti nægan tíma og í staðinn fyrir að keyra í átt að körfu reyndi hann skot lengst utan af velli sem geigaði. Richard skoraði 44 stig og gaf átta stoðsendingar fyrir Njarðvík og Okeke bætti við 29 stigum. Daniel Mortensen var stigahæstur Grindvíkinga með 26 stig, Pargo skoraði 18…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗