Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
What the source reports
Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð. Danska ríkisútvarpið segir tollverði hafa fundið um hálft kíló af hassi í föggum mannsins sem kom með fyrsta flugi Air Greenland frá Kaupmannahöfn þar sem Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, og utanríkisráðherrann Múte B.
Egede voru meðal farþega. Tollurinn tilkynnti lögreglu um málið í hádeginu, sem handtók manninn skömmu síðar, meðan vígsluathöfnin stóð sem hæst. Smyglaranum var sleppt skömmu síðar og lögregla segir hans bíða ákæra að rannsókn lokinni. Flugvöllurinn markar tímamót í ferðalögum til Grænlands og opnar nýjar leiðir fyrir ferðalanga sem vilja sækja landið heim. Rúmlega tveggja kílómetra…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗