Kjarasamningar kennara í hættu
What the source reports
Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem eru um 12 þúsund, samþykki breytingar á samningi fyrir laugardag. Þá verði samningar við kennara lausir frá og með næstu áramótum. „Nú hefur okkur verið tilkynnt að það standi ekki til að standa við þá samninga sem voru gerðir við okkur á síðasta ári og menn ætla að segja sig frá þessari innanhústillögu sem var forsenda kjarasamningsins sem að við gerðum og senda okkur drög að breyttu samkomulagi sem er bara nýr og rýrari samningur,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Þurfa að ná saman eigi síðar en á laugardag Ekki sé hægt að samþykkja breytingar á samningi án umboðs félagsmanna en það eru um 12 þúsund kennarar.
„Þetta eru allir félagsmenn Kennarasambandsins á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi og í tónlistarskólum sem gerðu þennan samning. Ég tel ekki miklar líkur á að það sé áhugi á þeim breytingum sem er verið að senda okkur. Svo er þetta gert bara þremur dögum fyrir okkar lokafrest til þess að virkja forsenduákvæði í okkar gildandi samningi. Ég held að við neyðumst til að virkja það ef það stendur ekki til að standa við þennan samning. “ Í miðri á í vinnu við virðismatið Kjarasamningur kennara var undirritaður í mars í fyrra og á að gilda til 2028. Í þeim samningi er ákvæði um svokallað virðismat sem er aðferð til að ákvarða virði starfa og launa. Magnús segir að tugir milljóna og mikil vinna hafi verið lögð í matið en því sé ekki lokið. „Núna erum við einhvern veginn á þeim stað að öll þessi vinna verði að engu og við förum aftur í umræðu um menntamál sem snúast um launakjör. Í gildandi samningi er gert ráð fyrir að þessari vinnu sé hægt að fresta í allt að sex mánuði og við höfum lagt það…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗