One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› KR og Álftanes áfram ósigruð

KR og Álftanes áfram ósigruð

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 9:32 PM
KR og Álftanes áfram ósigruð
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 9:32 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Álftanes vann æsispennandi leik gegn Tindastóli á Sauðárkróki, 108-105, eftir framlengingu. Heimamenn höfðu þrettán stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann, 86-73, en Álftnesingar unnu hann 19-10 og knúðu þannig fram framlengingu. Þar höfðu gestirnir betur, 12-9, og fögnuðu sínum fjórða sigri í jafnmörgum leikjum. Dedrick Basile var stigahæstur Álftnesinga með 26 stig og gaf auk þess 13 stoðsendingar. Jordan Semple og Martins Laksa skoruðu 18 stig hvor. Nemanja Durisic var stigahæstur Tindastóls með 29 stig. Þetta var fyrsta tap Tindastóls á tímabilinu. Þórir með 16 stoðsendingar KR-ingar héldu einnig sigurgöngu sinni áfram með 107-102 sigri á nýliðum Sindra. KR hafði tólf stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann, 82-70, en Sindramenn minnkuðu muninn í lokin.

Linards Jaunzems skoraði 27 stig fyrir KR og Roberts Berzins 19. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson átti sömuleiðis góðan leik, skoraði 17 stig og gaf 16 stoðsendingar. Kaleb Higgins fór hins vegar á kostum í liði Sindra og skoraði hvorki meira né minna en 47 stig, tók níu fráköst og gaf 13 stoðsendingar. Það dugði þó ekki til og Sindri er enn án sigurs eftir fjóra leiki. Chaplin með 39 stig í sigri Keflavíkur Keflavík vann Hött 112-99 í Keflavík. Heimamenn leiddu með þremur stigum fyrir síðasta leikhlutann, 78-74, en unnu lokafjórðunginn 34-25 og tryggðu sér þriðja sigurinn í fjórum leikjum. Jamir Chaplin var atkvæðamestur Keflvíkinga með 39 stig, fimm fráköst og sex stoðsendingar. Hilmar Pétursson bætti við 26 stigum og Jaka Brodnik skoraði 17. Aleksandar Pantelic var stigahæstur Hattar með 19 stig. Stjarnan vann sinn…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS