One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Milwaukee Brewers vann sögulegan sigur og er meistari í fyrsta sinn

Milwaukee Brewers vann sögulegan sigur og er meistari í fyrsta sinn

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 9:52 AM
Milwaukee Brewers vann sögulegan sigur og er meistari í fyrsta sinn
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 9:52 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Milwaukee Brewers og Tampa Bay Rays mættust í fimmta leik úrslitaeinvígins um bandaríska meistaratitilinn í hafnabolta í nótt. Brewers vann sögulegan sigur þar sem liðið varð bandarískur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Milwaukee komst í 3-0 í einvíginu en vinna þarf fjóra leiki til að fagna sigri. Tampa Bay svaraði fyrir sig í fjórða leiknum með sigri í framlengdum leik. Liðin mættust á heimavelli Tampa Bay í nótt þar sem titillinn var í boði fyrir Milwaukee. Milwaukee gerði vel og liðið komst í 2-0 í fimmtu lotu þegar David Hamilton náði í stig. Í sjöttu lotu komst Milwaukee svo í 4-0. Það var hinn 22 ára gamli Cooper Pratt sem tryggði liðinu fjórða stigið og þar með var sigurinn kominn í seilingarfjarlægð. Tampa Bay fann stig í níundu lotu en það dugði ekki til. Milwaukee fagnaði því sínum fyrsta meistaratitli.

Milwaukee Brewers varð í nótt bandarískur meistari í hafnabolta. Liðið hafði betur gegn Tampa Bay í fimmta leik úrslitaeinvígisins og vann einvígið samanlagt 4-1. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið vinnur titilinn. Hver er saga félagsins? Milwaukee Braves varð bandarískur meistari árið 1957 en níu árum síðar fluttist lið Braves yfir til Atlanta. Seattle Pilots var svo stofnað árið 1969 en eftir einungis eitt tímabil fluttist liðið til Milwaukee og úr varð Milwaukee Brewers. Liðinu gekk vel á níunda áratugnum og komst í úrslitaeinvígið árið 1982. Liðið mátti þar þola tap fyrir St. Louis Cardinals og þá hófst biðin eftir næsta tækifæri til þess að landa titlinum. Eftir slakt tímabil á tíunda áratugnum hófst endurreisnin upp úr aldamótum. Hún gekk sæmilega og eftir að liðið komst í úrslitakeppnina árið 2018 hefur það verið í mikilli uppbyggingu og hefur síðan þá verið meðal sterkari liða í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS