Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
What the source reports
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása, móðurfélags Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samkeppniseftirlitið heimilar kaupin á grundvelli sáttar við Ása með skilyrðum sem miða að því að vinna gegn mögulegum skaðlegum áhrifum samrunanna á samkeppni. Með kaupunum verða Öryggismiðstöð Íslands og Opin kerfi dótturfélög Ása, rétt eins og Síminn.
Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins segir að samkvæmt frummati hafi gögn bent til þess að sameinað félag myndi hafa hvata og getu til að beita útilokandi háttsemi gagnvart keppinautum með svokallaðri vogaraflshegðun. Með sátt Ása og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna skuldbinda Ásar sig til að fylgja ákveðnum skilyrðum. Þannig verður óheimilt að gera það að skilyrði fyrir kaupum á vaktaðri öryggisþjónustu á heimilum að viðkomandi sé jafnframt í viðskiptum við félögin um talsíma- eða…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗