One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 7:09 PM
Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 7:09 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hóf að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar af starfi fyrirtækisins óeðlileg og jafnvel ólögleg og óttaðist að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu. Eftir að Hörður Arnarson tilkynnti um afsögn sína sem forstjóri Landsvirkjunar óskaði fréttastofa eftir öllum samskiptum milli fjármálaráðuneytisins annars vegar og stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar hins vegar. Ekki fengust öll gögn afhent en þau gögn sem þó bárust sýna að Hörður hafi fyrst viljað vekja athygli á því sem hann taldi vera óeðlileg afskipti af rekstri fyrirtækisins í nóvember í fyrra. Það er hálfu ári eftir að ný stjórn Landsvirkjunar er kjörin á aðalfundi. Þá óskaði hann eftir fundi með fjármálaráðherra til að fara yfir samskipti Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins.

Honum varð ekki að ósk sinni því á Þorláksmessu fékk hann þau skilaboð frá stjórnarformanni að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefði óskað eftir því að fundinum yrði breytt. Þann 6. janúar fundaði Daði Már með stjórninni í ráðuneytinu þar sem rætt var um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytis. Hörður sat ekki þann fund. Minnisblað um lagalega áhættu og ábyrgð í rekstri Landsvirkjunar Það er svo í júní í fyrra sem Hörður sendir stjórn Landsvirkjunar þriggja blaðsíðna minnisblað þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við stjórnarhætti. Í minnisblaðinu lýsir Hörður áhyggjum af auknum samskiptum milli fjármálaráðuneytis og stjórnar Landsvirkjunar utan aðalfunda. Hætta sé á því að slík samskipti verði túlkuð sem pólitísk afskipti. Ef Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, túlki það þannig gæti það leitt til þess að Landsvirkjun verði óstarfhæf þar sem allar helstu…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS