One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSaka minnihlutann um lýðskrum í deilum um um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal

Saka minnihlutann um lýðskrum í deilum um um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 5:31 PM
Saka minnihlutann um lýðskrum í deilum um um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 5:31 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Undanfarin ár hefur skíðasvæðið í Skarðsdal verið rekið af L7 verktökum á Siglufirði. Bærinn gerði rekstrarsamning við L7 sem tryggði ákveðið rekstrarfé. Sá samningur rann út í vor og var auglýst eftir umsóknum um reksturinn. Á fundi bæjarráðs í Fjallabyggð í síðustu viku var ákveðið að hafna öllum umsóknunum og að bærinn myndi sjálfur sjá um rekstur svæðisins. Tómas Atli Einarsson, fulltrúi minnihlutans í bæjarráði, er verulega ósáttur við ákvörðunina.

Hann telur að áformin gangi gegn samþykktri stefnu Fjallabyggðar í íþróttamálum sem gerir ráð fyrir að útvista eigi heildarumsjón íþróttasvæða til félaga eða verktaka með það að markmiði að nýta sérþekkingu. Hann bendir einnig á að meirihlutinn hafi ekki sýnt fram á af hverju umsóknunum er hafnað og af hverju talið sé hægt að tryggja hagkvæmari og farsælan rekstur svæðisins. Meirihlutinn sakar minnihlutann um lýðskrum Fulltrúar meirihlutans, Helgi Jóhannsson og Jóhann K. Jóhannsson, eru ekki sammála gagnrýni Tómasar og segja að það eina sem vaki fyrir þeim sé að tryggja góðan og glæsilegan rekstur í Skarðsdal. „Leggist gegn fyrri gjörðum með lýðskrumi“ Þá segir í bókun meirihlutans: „Hið eina sem vakir fyrir meirihlutanum er að tryggja góðan og glæsilegan rekstur á skíðasvæðinu og því er miður að fulltrúi D-listans leggist gegn…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS