One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Síðasti andspyrnumaðurinn

Síðasti andspyrnumaðurinn

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 10:17 AM
Síðasti andspyrnumaðurinn
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 10:17 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ejler Borch fæddist 1925 og hann var ekki orðinn 19 ára þegar hann gekk til liðs við samtök sem gengu undir nafninu BOPA, Borgerlige Partisaner eins og samtökin heita á dönsku, og tók þátt í árásum eða spellvirkjum þessara samtaka á lokaárum síðari heimsstyrjaldarinnar. Líkt og margir aðrir sem þátt tóku í andspyrnunni gegn Þjóðverjum hefur hann þó haft hljótt um þennan afdrifaríka tíma þar til fyrir skemmstu, þegar rithöfundurinn Anders Hauch Fenger hafði uppi á honum. Eftir nokkra eftirgangsmuni féllst Ejler á að segja sögu sína. Ejler er kvikur á fæti, segist fara í ræktina þrisvar í viku og sjá um sig sjálfur, hann lét sig ekki muna um að snara sér til Íslands til að kynna þýðingu á bók sem skrifuð hefur verið um hann og kemur nú út í íslenskri þýðingu Þorvaldar Þorvaldssonar.

Þjóðverjar réðust inn í Danmörku strax í apríl 1940 og danska ríkisstjórnin ákvað að vera samvinnufús gegn því að halda völdum að hluta. Sú afstaða hefur alla tíð verið umdeild og ekki síður starfsemi danskra fyrirtækja sem framleiddu vörur fyrir þýska herinn. Ejler Borch er eini eftirlifandi andspyrnumaðurinn í Danmörku, tæplega 101s árs. Átján ára gekk hann til liðs við andspyrnuhreyfinguna gegn innrásarliði Þjóðverja en hefur haft hljótt um það til þessa. Uppgjör þessara afdrifaríku ára hefur auðvitað verið erfitt og stjórnmálaflokkar hafa lent í miklum vanda við að gera upp stríðsárin og gjörðir flokksmanna á þeim tíma. Í reynd var það almenningur sem tók í taumana í mótstöðu við innrásarliðið og andspyrnuhreyfingin átti síðan stóran hlut að máli. BOPA samtökin voru stórtæk í árásum m. a. á danskar verksmiðjur þar sem fram fór starfsemi sem gagnaðist þýska innrásarliðinu og þýska hernum í heild, en lengi framan af styrjöldinni voru Danir taldir leppríki…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS