Skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum
What the source reports
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum og að hækka ekki gjöld um meira en tvö og hálft prósent. Forystumenn verslunarmanna, fagfélaganna og Samtaka atvinnulífsins ræddu forsenduákvæði kjarasamninga á fundi í húsnæði fagfélaganna í dag. Þetta er annar fundur þeirra síðan ljóst varð að verðbólga væri meiri en ákvæðið í kjarasamningum. Og formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins héldu fjögurra klukkustunda fund á skrifstofum sambandsins í dag.
„Við höfum lagt mikla áherslu á að kjarasamningar haldi og að allir axli sína ábyrgð og þar með talið að ríkið hækki ekki gjaldskrár meira en 2,5 prósent, sveitarfélögin það sama og verslun og þjónusta,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. „Þau skilaboð sem að ríkisstjórnin sendi út með þessu fjárlagafrumvarpi þar sem að er, hvað á ég að segja, frá 100% hækkun eins og komugjöld á heilsugæsluna og alveg niður í 5,2 prósent. Þetta er ekki sú vegferð sem að við áttum von á að sjá frá stjórnvöldum, því miður. “ Í ályktun Starfsgreinasambandsins um ábyrgð stjórnvalda er fyrir utan komugjöldin talið upp kílómetragjald, aukning á skattbyrði fólks vegna breytinga á persónuafslætti og skattþrepum og auknar álögur á atvinnulífið sem muni skila sér út í verðlag og bitna á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗