Valkyrjurnar unnu sögulegan sigur og eru NBA meistarar
What the source reports
Golden State Valkyries og Atlanta Dream mættust í oddaleik í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitil kvenna í körfubolta í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem úrslitaeinvígi kvenna fer í oddaleik. Atlanta hafði komist 2-1 yfir í einvíginu eftir fyrstu þrjá leikina en því svaraði Golden State með tveimur sigurleikjum í röð. Atlanta vann sjötta leikinn og því þurfti oddaleik. Jafnræði var meðal liðanna í fyrsta leiklhluta en Veronica Burton sá til þess að Golden State leiddi að honum loknum, 12-14. Atlanta náði þó forystunni í öðrum leikhluta og leiddi í hálfleik, 30-24.
Atlanta leiddi mest með níu stigum í þriðja leikhluta, 37-28. Þá svaraði Golden State með góðri syrpu og Gabby Williams kom liðinu yfir fyrir lok þriðja leikhluta, 44-45. Williams með dýrmæta þriggja stiga körfu Í fjórða leikhluta tókst hvorugu liðinu að slíta sig frá hinu og liðin skiptust á að skora stig. Allt var jafnt í stöðunni 57-57 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Þá setti Williams niður þriggja stiga skot og áður en langt um leið leiddi Golden State, 57-64. Það forskot reyndist afar dýrmætt því illa gekk hjá Atlanta að minnka muninn. Loks landaði Golden State fimm stiga…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗